Safn: SOMMERULD

Økologisk Sommeruld er fullkomin í léttari flíkur þar sem 100% ull þykir of heit, eins og t.d. sumartoppa eða sæta kjóla þar sem hið norðlæga sumar er ekki alltaf upp á marga fiska. Økologisk Sommeruld (lífræn Sumarull) er framleidd sérstaklega fyrir CaMaRose í Evrópskri spunaverksmiðju, sem framleiðir garn og aðrar textílvörur með tilliti til umhverfis, dýravelferðar, heilsu, vinnuumhverfis, sjálfbærni og gæða. Garnið er 70% lífrænt vottuð merinóull og 30% lífrænt vottuð bómull.

SOMMERULD