Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 5

T&M - Chiaogoo skiptanlegir 2,75-5mm

T&M - Chiaogoo skiptanlegir 2,75-5mm

Venjulegt verð 15.990 kr
Venjulegt verð Söluverð 15.990 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stelpurnar á bak við Thread & Maple hafa hannað alveg einstakt skipulagskerfi fyrir verkfærin okkar. Við getum núna sett saman möppu sem er sérsniðin að okkar einstaka prjónasafni. Það á enginn eins prjóna, sumir eiga fullt af áföstum hringprjónum á meðan næsti á meira af sokkaprjónum eða bara skiptanlega prjóna eða allt í bland. Ekkert veski hefur komið á markaðinn sem getur virkað fyrir svona ólíkar þarfir og einnig verið svona tímalaust og fallegt á sama tíma. Það sést að þessar vörur eru hannaðar af prjónurum fyrir prjónara!

Þetta veski passar fyrir lítið sett frá Chiaogoo sem inniheldur oddastærðir: 2,75mm, 3.25mm, 3.5mm, 3.75mm, 4.0mm, 4.5mm, 5.0mm. Veskið hentar bæði fyrir 10 cm eða 13 cm odda. 

Veskið getur bæði verið blaðsíða í möppunum frá Thread & Maple eða stakt veski. Ef þú átt marga skiptanlega odda þá getur þú fengið þér eins margar síður í möppuna eins og þú telur þörf á. 

Veskin eru handgerð af mikilli nákvæmni og natni úr ekta leðri. Leðrið er sérvalið af stelpunum í Thread & Maple með það í huga að það eldist fallega og gangi jafnvel í erfðir. Leðrið eldist einstaklega fallega og fær maður tilfinningu fyrir því að veskið eigi sér sögu og það fær einnig á sig mikinn karekter með tímanum. 

Stærð:

Opið: 27cm x 18cm

Lokað: 13,5cm x 18cm

ATH! prjónarnir á myndinni fylgja ekki með.

Skoða allar upplýsingar