Afhendingarskilmálar
Allar pantanir eru afgreiddar samdægurs eða næsta virka dag eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager mun starfsmaður hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar.
Fyrir allar pantanir dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar.
Litla Prjónabúðin ehf ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að hún er send frá Litlu Prjónabúðinni til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf. Frí sending í póstbox er á pöntunum 17.500 kr. og yfir nema annað komi fram í lýsingu á vöru.
Uppskriftir eru afhendar í PDF formi til einkanota fyrir kaupanda. Hlekkur til niðurhals uppskriftar er sendur á netfang það er skráð er í kaupum. Hægt er að hlaða niður uppskrift fimm sinnum með hverjum kaupum. Vinsamlegast sendið póst á vefverslun@litlaprjonabudin.is ef eitthvað hefur misfarist í niðurhalningu.