Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 5

Hvoll

Hvoll

Venjulegt verð 1.050 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.050 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stærðir: (1,5-2) 3 (4-5) 6-7 ára

Aðferð: Hvoll er klassísk lopapeysa með hettu. Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón, axlastykki prjónað í hring og hettan í beinu framhaldi. Umferð byrjar og endar á brugðinni lykkju á miðjum bol og upp hettu. Saumað er með saumavél í brugðnu lykkjurnar á miðju framstykki og hettu áður en klippt er upp milli þeirra til að opna peysuna. Listi framan á bol og hettu er prjónaður á í lokin.

Efniviður

Léttlopi - 50 gr/100 m
Hvít
A 0051 hvítur 4 (4) 5 (6)
B 9426 gulgrænn 2 (2) 2 (2)
Grá
A 0057 ljósgrár 4 (4) 5 (6)
B 0051 hvítur 2 (2) 2 (2)

Aðrar tegundir sem hægt er að nota:
- 3 þráða Snælda frá Snældunni
- Peruvian Highland Wool frá Filcolana
- Lamauld frá CaMaRose

Prjónar og áhöld

- Hringprjónar nr. 3,5 og 4,5 / 40 og 60 cm.

- Sokkaprjónar nr. 3,5 og 4,5 / eða 80 - 100 cm hringprjón ef notast er við “magic loop” aðferðina.

- 4 prjónanælur eða aukabönd.

Prjónfesta

18 L og 24 umf = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á prjóna
nr. 4,5 eftir þvott. Sannreynið prjónfestu og skiptið um
prjónastærð ef þarf.

Skoða allar upplýsingar