Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 2

Krummi

Krummi

Venjulegt verð 1.050 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.050 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stærðir: 1 (2) 3-4 (5-6) 7-8 (9-10) ára

Aðferð: Krummapeysan er hefðbundin íslensk lopapeysa. Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umferð byrjar í vinstri hlið á bol en á axlastykki byrjar umferð á samskeytum bols og ermar, vinstra megin á baki.

Efniviður

Léttlopi
50 gr = 100 m
Litur A: 3 (4) 4 (5) 6 (6) dokkur
Litur B: 1 dokka allar stærðir

Hér fyrir neðan eru uppástungur af garntegundum sem einnig er hægt að nota

Lamaull frá CaMaRose
50 gr = 100 m

3 þráða Snælda
50 gr = 130 m

Prjónar og áhöld

Hringprjónar nr. 3 1⁄2 og 4 1⁄2 - 40 og 60 cm
Sokkaprjónar nr. 3 1⁄2 og 4 1⁄2
Prjónanælur eða aukabönd = 4 stk
Prjónamerki = 1 stk

Prjónfesta

10 x 10 cm = 18 L og 24 umf í sléttu prjóni á prjóna nr 4,5
Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf

Skoða allar upplýsingar