Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 6

Snjóalda

Snjóalda

Venjulegt verð 1.050 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.050 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stærðir: 2 (4) 6 (8) ára

Aðferð: Snjóalda er með örlítið meiri vídd í bol en hefðbundið þykir. Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykkið prjónað með laskaúrtöku í hring. Umferð byrjar í vinstri hlið á bol en á axlastykki byrjar umferð á samskeytum bols og ermar, vinstra megin á baki. Hálsmál er formað áður en kragi er prjónaður.

Efniviður

Léttlopi - 50 gr/100 m
A 0051 hvítur 4 (4) 5 (5) dokkur
B 0005 hærusvartur 1 (2) 2 (2) dokkur

Aðrar tegundir sem hægt er að nota:
- 3 þráða Snælda frá Snældunni
- Peruvian Highland Wool frá Filcolana
- Lamauld og Lamatweed frá
CaMaRose

Prjónar og áhöld

- nr 4 og 4,5 / 60 cm
- nr 4,5 / 40 cm
- nr 3,5 og 4,5 / sokkaprjóna eða 80 - 100 cm hringprjón ef notast er við “magic loop” aðferðina.

- 4 prjónanælur eða aukabönd.

Prjónfesta

18 L og 24 umf = 10 x 10 cm í sléttu prjóni á prjóna
nr. 4,5 eftir þvott. Sannreynið prjónfestu og skiptið um
prjónastærð ef þarf.

Skoða allar upplýsingar