Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 4

T&M - sokkaprjónar

T&M - sokkaprjónar

Venjulegt verð 10.590 kr
Venjulegt verð Söluverð 10.590 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stelpurnar á bak við Thread & Maple hafa hannað alveg einstakt skipulagskerfi fyrir verkfærin okkar. Við getum núna sett saman möppu sem er sérsniðin að okkar einstaka prjónasafni. Það á enginn eins prjóna, sumir eiga fullt af áföstum hringprjónum á meðan næsti á meira af sokkaprjónum eða bara skiptanlega prjóna eða allt í bland. Ekkert veski hefur komið á markaðinn sem getur virkað fyrir svona ólíkar þarfir og einnig verið svona tímalaust og fallegt á sama tíma. Það sést að þessar vörur eru hannaðar af prjónurum fyrir prjónara!

Þetta veski er hannað með sokkaprjóna í huga. Veskið getur bæði verið blaðsíða í möppunum frá Thread & Maple eða stakt veski. Ef þú átt mörg sett af sokkaprjónum þá getur þú fengið þér eins margar síður í möppuna eins og þú telur þörf á. ATH! Einnig eru hólf fyrir sokkaprjóna í öðrum vængnum á möppunum.

Veskið hefur 8 hólf fyrir sokkaprjóna, en það er einnig hægt að setja heklunálar í fremri hólfin.

Veskin eru handgerð af mikilli nákvæmni og natni úr ekta leðri. Leðrið er sérvalið af stelpunum í Thread & Maple með það í huga að það eldist fallega og gangi jafnvel í erfðir. Leðrið eldist einstaklega fallega og fær maður tilfinningu fyrir því að veskið eigi sér sögu og það fær einnig á sig mikinn karekter með tímanum. 

Stærð:

Opið: 27cm x 18cm

Lokað: 9cm x 18cm

ATH! prjónarnir á myndinni fylgja ekki með.

Skoða allar upplýsingar