Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 3

T&M - slip

T&M - slip

Venjulegt verð 7.990 kr
Venjulegt verð Söluverð 7.990 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stelpurnar á bak við Thread & Maple hafa hannað alveg einstakt skipulagskerfi fyrir verkfærin okkar. Við getum núna sett saman möppu sem er sérsniðin að okkar einstaka prjónasafni. Það á enginn eins prjóna, sumir eiga fullt af áföstum hringprjónum á meðan næsti á meira af sokkaprjónum eða bara skiptanlega prjóna eða allt í bland. Ekkert veski hefur komið á markaðinn sem getur virkað fyrir svona ólíkar þarfir og einnig verið svona tímalaust og fallegt á sama tíma. Það sést að þessar vörur eru hannaðar af prjónurum fyrir prjónara!

Þetta litla handhæga slip er í stærð sem hægt er að smeigja inní hólf á möppunum frá T&M. Einnig er þetta sjálfstæð eining sem hægt er að nota fyrir heklunálar, langa odda fyrir skiptanlega prjóna og sokkaprjóna.

Veskin eru handgerð af mikilli nákvæmni og natni úr ekta leðri. Leðrið er sérvalið af stelpunum í Thread & Maple með það í huga að það eldist fallega og gangi jafnvel í erfðir. Leðrið eldist einstaklega fallega og fær maður tilfinningu fyrir því að veskið eigi sér sögu og það fær einnig á sig mikinn karekter með tímanum. 

Stærð: 21cm x 14,5cm

ATH! prjónarnir á myndinni fylgja ekki með.

Skoða allar upplýsingar