Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 5

Þúfa

Þúfa

Venjulegt verð 1.050 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.050 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stærðir: 2 (3) 4 (5-6) ára

Aðferð: Peysan Þúfa er prjónuð í hring ofan frá og niður í sléttu prjóni og tvíbandaprjóni. Byrjað er að prjóna stroff í hálsmáli og axlastykki prjónað niður. Lykkjur fyrir bol sameinaðar og prjónaðar niður á meðan ermalykkjur hvíla á bandi. Því næst eru lykkjur fyrir ermar settar á prjón og prjónaðar niður.

Efniviður

Lamauld
50 gr = 100 m
Litur A: 3 (3) 4 (4) dokkur
Litur B: 2 dokka allar stærðir

Hér fyrir neðan eru uppástungur af garntegundum sem einnig er hægt að nota

Léttlopi
50 gr = 100 m

3 þráða Snælda
50 gr = 130 m

Peruvian Highland Wool
50 gr = 100 m

Prjónar og áhöld

Hringprjónar nr. 3 1⁄2 og 4 1⁄2 - 40 og 60 cm
Sokkaprjónar nr. 3 1⁄2 og 4 1⁄2
Prjónanælur eða aukabönd = 4 stk
Prjónamerki = 1 stk

Prjónfesta

10 x 10 cm = 18 L og 24 umf í sléttu prjóni á prjóna nr 4,5
Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf

Skoða allar upplýsingar