Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 1

Snös

Snös

Venjulegt verð 1.050 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.050 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stærðir: 1 (2) 3 (4) 5 (6) 

Yfirvídd: 91 (94) 96 (100) 104 (109) cm / mælt er með 0-8 cm í hreyfivídd

Aðferð: Snös er klassísk íslensk lopapeysa. Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað i hring, fyrst er gerð laskaúrtaka og svo tekur stuttur hringlaga bekkur við. Umferð byrjar í vinstri hlið á bol en á axlastykki byrjar umferð á samskeytum bols og ermar, vinstra megin á baki. Peysan er aðsniðin í mitti og prjónuð er upphækkun efst á bol áður en axlastykki er prjónað.

Vantar þig garn í peysuna:

Lamauld

Lamatweed

Snældan

Peruvian Highland Wool

Efniviður

Léttlopi
50 gr - 100 m
A: 0052 sauðsvartur 8 (8) 9 (9) 10 (11) dokkur
B: 0051 hvítur 1 (1) 1 (1) 1 (1) dokka
C: 0086 ljósmórauður 1 (1) 1 (1) 1 (1) dokka

Einnig er hægt að nota aðrar garntegundir í worsted grófleika eins og:

Lamaull frá CaMaRose
3 Þráða Snælda

Prjónar og áhöld

Hringprjónar 4 og 4 1⁄2 mm - 80 cm
Hringprjónar 4 1⁄2 mm - 40 cm
Sokkaprjónar 3 1⁄2 og 4 1⁄2 mm
Prjónanælur eða aukaband = 6 stk
Prjónamerki = 4 stk

Prjónfesta

10 x 10 cm = 18 L og 24 umf í sléttu prjóni á ptjóna nr 4,5 eftir þvott
Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf

Skoða allar upplýsingar