Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 3

Sólkatla

Sólkatla

Venjulegt verð 1.050 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.050 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stærðir: 1 (2) 3 (4) 5 (6)

Yfirvídd: 84 (89) 98 (107) 116 (120) - mælt er með 5-15 cm í hreyfivídd

Aðferð: Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umferð byrjar í vinstri hlið á bol en á axlastykki byrjar umferð á samskeytum bols og ermar, vinstra megin á baki.

Vantar þig garn í peysuna:

Lamauld

Lamatweed

Snældan

Peruvian Highland Wool

Efniviður

Léttlopi – 50 gr dokkur
A: 0051 hvítur 7(8) 8 (9) 9 (10) dokkur
B: 0058 dökkgrár 2(2) 2 (2) 2 (2) dokkur
C: 0054 fölgrár 1(1) 1 (1) 1 (1) dokka
D: 9264 gulur 1(1) 1 (1) 1 (1) dokka (litur hættur í framleiðslu)
E: 9426 gulgrænn 1(1) 1 (1) 1 (1) dokka

Hér fyrir neðan eru uppástungur af garntegundum sem einnig er hægt að nota

Lamaull frá CaMaRose
50 gr - 100 m

3 þráða Snælda
50 gr = 130 m

Prjónar og áhöld

Hringprjónar 3 1⁄2 - 40 og 80 cm
Hringprjónar 4 1⁄2 - 40, 60 og 80 cm
Sokkaprjónar 3 1⁄2 og 4 1⁄2
Prjónanælur eða aukaband = 4 stk
Prjónamerki = 1 stk

Prjónfesta

10 x 10 = 18 L og 24 umf í sléttu prjóni á prjóna nr 4,5 eftir þvott
Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf

Skoða allar upplýsingar