Endurgreiðslustefna
Vöruskil
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu umbúðum þegar henni er skilað. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Útsöluvörum er einungis hægt að skipta út fyrir aðrar útsöluvörur.
Fyrir spurningar er varða vöruskil sendið póst á vefverslun@litlaprjonabudin.is og við svörum ykkur eins fljótt og unnt er. Einnig er hægt að hringja í verslun á opnunartíma með allar fyrirspurnir varðandi vefverslun og vörur, S: 551-2550.
Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um neytendakaup nr.48/2003 og laga um neytendasamninga.
Vinsamlegast ástandsskoðið vöru við afhendingu. Ef skemmd eða galli reynist á vöru, skal frávik samstundis tilkynnast með pósti á vefverslun@litlaprjonabudin.is.
Undantekningar / vörur sem ekki er hægt að skila
Uppskriftum og gjafakortum er ekki mögulegt að skila né skipta. Póstburðargjöld fást ekki endurgreidd.