Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 2

053 - Dust

053 - Dust

Venjulegt verð 1.790 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.790 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

10 á lager

Essentials Super Kid Mohair Loves Silk

Grófleiki: lace

Prjónfesta: ---

Prjónar: ---

Þyngd / lengd: 25 gr / 200 m

Meðhöndlun: handþvottur / leggist niður til þerris

Hráefni: 70% Super Kid Mohair + 30% silki

Essentials super kid mohair LOVES silk er algjört lúxus garn, spunnið úr 70% kidmohair og 30% mórberjasilki. Þetta mohair hefur extra langa þræði sem gerir flíkur úr því hærðari en þegar notast er t.d. við Tilia frá Filcolana.

Mohair hefur alla þá góðu eiginleika sem ullin af kindinni hefur. Hún er hlý, falleg og dregur í sig raka sem gerir þetta hráefni einstaklega gott í flíkur. Silki hefur verið eitt vinsælasta hráefni í gegnum árþúsundin, og það ekki að ástæðulausu, efnið er temprandi, yndislega mjúkt og sterkt frá náttúrunnar hendi. Blandan af silki og mohair er því draumi líkust.

Mohair kemur af Angórugeitinni sem á uppruna sinn að leita til Ankara í Tyrklandi. Nafnið mohair hefur arabískar rætur og hefur geitin oft verið nefnd mohairgeitin. 

Mórberjasilkið er talið besta silkið sem fyrirfinnst. Það hefur bæði meiri glans og er sterkara en aðrar silkitegundir. Mórberjasilki hefur verið framleitt í Kína í árþúsundir og er ein mikilvægasta útflutningsvara Kína.

Það má að sjálfsögðu prjóna Mohair eitt og sér en mælt er með því að nota það sem fylgiþráð eða prjóna úr því tvöföldu, jafnvel þreföldu. Garnið má prjóna með öllum þeim tegundum sem þig listir, leyfðu hugmyndafluginu að blómstra.

Skoða allar upplýsingar