410 - FENNIKEL
410 - FENNIKEL
20 á lager
LØVETAND
Grófleiki: DK
Prjónfesta: 21– 22 L og 31-32 umf = 10 x 10 cm
Prjónar: 3,5 – 4 mm
Þyngd / lengd: 50 gr / 140 m
Meðhöndlun: handþvottur með ullarsápu og leggist niður til þerris
Hráefni: 100% lífrænt hör
Meðhöndlun: viðkvæmur þvottur max 30°C / leggist niður til þerris. Ekki má nota venjulegt þvottaefni á hörið þar sem þar er oft að finna bleikiefni sem skemma hörtrefjarnar.
Løvetand er hörgarn úr lífrænt vottaðri hör frá Belgíu sem er svo unnin á Ítaliu fyrir CaMaRose. Þráðurinn er úr unninn úr örfínum hörþræði sem er prjónaður í snúru. Með því að útbúa þráðinn með þessum hætti næst mýkri hör en ef það er látið vera einn þráður.
Løvetand er frábært hráefni í sumartoppa, kjóla og neðri parta þar sem hörið hefur hitatemprandi áhrif, kælir í hitanum yfir daginn og hlýjar þegar kólnar að kveldi. Hör er líka frábært í töskur, veski og aðra fylgihluti sem þurfa að vera sterkbyggðir.
Hörið er búið til úr stöngli hörblómsins sem gerir hörið öflugt og slitsterkt. Hörið getur virkað nokkuð stíft á meðan prjónað úr því því þetta er plöntustöngull en það verður mýkra og fallegra því meira sem það er handfjatlað, notað og þvegið. Hör er allt að 5 sinnum sterkara en bómull og getur hágæða hör eins og Løvetand enst í allt að 30 ár. Hör andar vel, hefur sýkladrepandi áhrif og hentar fyrir viðkvæma húð. Hör er umhverfisvænt og brotnar alveg niður í náttúrunni.