5012 - VARM ROSA
5012 - VARM ROSA
10 á lager
TYND LAMAULD
Grófleiki: Fingering
Prjónfesta: 26 - 28 L og 40 umf = 10 x 10 cm
Prjónar: 2,5 – 3,5 mm
Þyngd / lengd: 50 gr / 220 m
Meðhöndlun: handþvottur með ullarsápu og leggist niður til þerris
Hráefni: 50% Lamaull og 50% Peruvian Highland wool
Tynd Lamauld (fíngerð lamaull) er einspinna sem sínir fegurð sína um leið og prjónað er úr henni og flíkin þvegin. Lamaullin hefur mislanga þræði frá náttúrunnar hendi og því verður maður smá loðinn á meðan maður prjónar úr henni en lausir þræðir fara flestir úr í fyrsta þvotti. Tynd lamauld er mjúk og rustik á sama tíma.
Tynd Lamauld er framleidd fyrir CaMarose í spunaverksmiðju í Perú þar sem mikið tillit er tekið til umhverfis, dýravelferðar, bænda í nágrenninu og starfsfólks. Framleiðandinn hefur OEKE-TEX vottun á öllum ullarvörum sem hann framleiðir og nýtir sólarorku við framleiðslu. Há krafa um gæði með tilliti til umhverfis, dýravelferðar og starfsmanna í verksmiðjunni er grunnurinn fyrir samstarfi spunaverksmiðjunnar og CaMaRose síðan 2010.