7141 - CREME
7141 - CREME
Uppselt
SNEFNUG NATUR
Grófleiki: Bulky / Aran
Prjónfesta: 12-16 L og 24 umf = 10 x 10 cm
Prjónar: 4 - 6 mm
Þyngd / lengd: 50 gr / 110 m
Meðhöndlun: handþvottur með ullarsápu og leggist niður til þerris
Hráefni: 55% Baby alpaca (ólituð), 10% extra fine merinóull (mulesing free) og 35% lífrænt vottuð bómull
Vottanir: 10% extra fine merinóull er mulesing free
Snefnug Natur er yndislega mjúkt, létt, loftugt og með mikla fyllingu. Garnið er framleitt úr náttúrulegum hráefnum, 55% ólitaðri Baby alpaca, 10% extra fine merinóull (mulesing free) og 35% lífrænt vottaðri bómull.
Snefnug Natur (Snjókorn) er framleitt fyrir CaMaRose hjá Ítalskri fjölskyldurekinni spunaverksmiðju sem starfar með tilliti til umhverfis og dýravelferðar. Merinoullin er mulesing free og kemur frá Suður Ameríku. Alpacaullin kemur frá Perú og bómullin kemur frá Egyptalandi.
Uppistaðan í Snefnug Natur er prjónuð lífrænt vottuð bómullartúba, inní þessa túbu er blásin einstaklega fíngerð og mjúk blanda af merinóull og alpacaull. Þannig verður til hið svokallaða blásið garn sem er um leið sterkbyggt og mjúkt í senn.
Snefnug Natur er vinsælt í allar flíkur fyrir alla aldurhópa, frá ungabörnum til fullorðinna.
Snefnug Natur kemur í 11 fallegum tónum frá náttúrunnar hendi.
Einnig er til Snefnug sem er á allan hátt eins og Snefnug Natur nema þar eru allir litir litaðir.