Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 3

Auðhumla

Auðhumla

Venjulegt verð 1.050 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.050 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stærðir: 0-2 (2-4) 6-9 (9-12) mánaða

Aðferð: Auðhumla er einfaldur heilgalla fyrir ungabörn. Byrjað er að prjóna báðar skálmarnar þar sem klofbótin er prjónuð inní skálmina efst. Skálmarnar sameinaðar á einn prjón og ísetan prjónuð áfram sem eitt stykki í hring fyrst og svo fram og til baka þar sem opnun byrjar framan á galla. Þegar hæfilegri lengd er náð á búk er prjónuð upphækkun að aftan. Ermar eru síðan prjónaðar og þær svo í framhaldi prjónaðar inn með neðri parti. Næst er berustykkið prjónað og í lokin listar að framan.

Efniviður

Alls: 470 (590) 690 (790) m af garni í fingering grófleika. Hér fyrir neðan eru uppástungur af garntegundum sem hægt er að nota.

Yaku frá CaMaRose
50 gr dokkur = 200 m
3 (3) 4 (4) dokkur

Sommeruld frá CaMaRose
50 gr dokkur = 230 m
3 (3) 3 (4) dokkur

Tynd lamauld frá CaMaRose
50 gr dokkur = 220 m
3 (3) 4 (4) dokkur

Everyday, The uncommon thread
100 gr hespur = 400 m
1 (1) 2 (2) hespur

ATH! passið að eiga aukalega af garni ef þið ætlið að gera pífur eða lengri stroff fyrir uppábrot.

Prjónar og áhöld

Hringprjónn 2 1⁄2 mm - 60 cm
Hringprjónn 3 mm - 40 og 60 cm
Sokkaprjónar 2 1⁄2 og 3 mm
Prjónamerki = 4 stk
Prjónanælur eða aukaband = 6 stk
Tölur = 6 (7) 7 (7) stk / ca 12-15 mm

Prjónfesta

10 x 10 cm = 29 L og 38 umf á prjón nr 3 í sléttu prjóni eftir þvott
Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf

Skoða allar upplýsingar