Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 4

Eucalan sápa Lavender

Eucalan sápa Lavender

Venjulegt verð 4.290 kr
Venjulegt verð Söluverð 4.290 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Náttúrulegu sápurnar frá Eucalan er bæði hægt að nota í handþvott og í þvottavélar. Jasmin ilmkjarnaolían hefur sótthreinsandi áhrif og hentar því einstaklega vel í viðkvæmasta þvottinn þinn.


Afhverju að nota lavender ilmkjarnaolíur í sápuna?

Þó svo að allar Eucalan sápurnar hreinsi eins (losa óhreinindi frá því sem er verið að þrífa og losa það út í vatnið) þá eru sumar olíur sem skilja eftir langvarandi áhrif. Lavender ilmkjarnaolía virkar sem flóa- og mölflugufæla og hefur einnig sótthreinsandi eiginleika. Þetta er fjölhæf sápa fyrir fjölbreyttar trefjar sem hefur sætan og  róandai ilm og er því tilvalin fyrir ungbarnaföt.

Afhverju á ekki að skola sápuna úr?

Eucalan sápan er ekki þannig gerð að það þurfi að skola hana úr. Vatnið verður að öllum líkindum aðeins brúnt þegar sápan losar um óhreinindi í flíkinni og sleppir þeim út í vatnið. Þó svo að sápan sé að hluta til enn í ullarflíkinni þá er það af hinu góða, lanolínið í sápunni styrkir ullarþræðina og mýkir, einstaklega gott fyrir allar ullarflíkur.

Ef þú hefur þörf fyrir það að skola sápuna úr þá er það að sjálfsögðu í fínu lagi, sápan er búin að vinna vinnuna sína og taka óhreinindi úr flíkinni, það eina sem tapast við það að skola sápuna úr eru langvarnadi áhrifin af lanolín og eucalyptus ilmkjarnaolíunni.

Eucalan sápan er einnig tilvalin í ferðalög þar sem ekki er von á að komast í þvottavél eða þar sem spara þarf vatn.

Skoða allar upplýsingar