Laine Magazine 27
Laine Magazine 27
2 á lager
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Laine Magazine er framúrskarandi prjóna- og lífstílstímarit með norðlensku ívafi fyrir nútíma handverksfólk.
Stelpurnar á bak við Laine, Jonna og Sini, hafa enn eitt skiptið sent frá sér frábært eintak af Laine sem hefur í hávegum náttúrulega þræði, hægan lífsstíl, handverk úr nærumhverfinu og hið fallega og náttúrlega líf.
Í Laine Magazine 27 er að finna:
- 15 uppskriftir, 10 peysur, 1 kjóll, 2 sjöl og vettlingapar. Hönnuðir uppskrifta eru: Andrea Aho, Joanna Filip, Lindsey Fowler, Saysha Greene, Jonna Helin, Henna Ketonen, Raina Kruus, Sara Markkula, Rebekka Mauser, Camille Romano, Selena Shepard & Abbye Meiklejohn, Eri Shimizu, Elena Solier Jansà, María Uzquiano and Maaike van Geijn.
- Ný "uppáhalds grein" uppfull af litlum sögum, góðum ráðum, vörum, umsögnum og hugmyndum! Laine heimsótti Forever Yarn shop í Doylestown í Bandaríkjunum og fékk stíl-innblástur frá Evdoxia-Glykeria "Doxy" Pantazi (@duchessevdoxia).
- Viðtal við danska prjónahönnuðinn Anne Ventzel (@anneventzel) sem er þekkt fyrir nútímalega hönnun með skandinavískum áhrifum. Anne talar um hönnun sýna og hvaða hlutverki hún gengdi í baráttu hennar við krabbamein.
- Jeanette Sloan kemur hér með endurnýjaðan dálk þar sem hún skrifar um ákveðinn ofurkraft sem prjónarar búa yfir.
- Fimm góð ráð frá Päivi Kankaro um það hvernig hægt sé að láta prjónlesið sitt fá snyrtilegt og fágað yfirbragð.
Blaðsíðufjöldi: 164
Tungumál: Enska
Umbrot: Mjúkspjalda
Deila
