Lojan bandvefstóll - 3 in 1
Lojan bandvefstóll - 3 in 1
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Inkeltje bandvefstóllinn frá Lojan er hannaður með aðstoð frá Marieke Kranenburg vefara.
Þessi fjölhæfi bandvefstóll hentar fullkomlega fyrir bæði stutta og langa borða og nýtist einnig afar vel við spjaldvefnað. Hann er fljótlegur og auðveldur í samsetningu, hentar bæði örvhentum og rétthentum, og honum fylgja gagnlegir fylgihlutir, svo sem skytta, borðklemma og skýrar leiðbeiningar ásamt dæmi um mynstur.
Fjölhæfur og nettur
-
Stutt band: Tilvalið fyrir prufur og lítil verkefni eins og armbönd, með uppistöðulengd upp á um það bil 1,15 m
-
Langt band:
Hentar fyrir lengri bönd eins og axlabönd, bönd inní uppklipptar peysur eða haldföng á töskur, með hámarks uppistöðulengd upp á um það bil 2,65 m
-
Spjaldvefnaður: Hægt er að fjarlægja efsta pinnann, sem gefur þér auka lengd þegar unnið er með spjöld í spjaldvefnaði.
- Fljótleg og auðveld samsetning: Handhæg skrúfusmíðin gerir samsetninguna fljótlega, ætti að taka innan við 15 mínútur.
-
Hentar bæði hægri og vinstri höndum: Hægt er að setja vefstólinn saman frá hvorri hlið sem er til að hann henti vefnaðarstíl þínum.
Hentugir aukahlutir
hólf á hliðinni fyrir skutluna þína svo hún sé alltaf við hendina.
Kemur með lítilli gulri skyttu.
Hettur á pinnunum til að koma í veg fyrir að uppistöðuþráðurinn renni af.
Gúmmífætur fyrir aukinn stöðugleika við vefnaðinn.
Borðfesting fyrir aukinn stöðugleika við uppsetningu eða vefnað.
Hægt er að nota texolv haföld (160 mm).
Inniheldur ítarlega handbók um samsetningu og vefnað eftir Marieke Kranenburg, ásamt lítilli uppskrift svo þú getir byrjað strax.
Stærð: 61,5 x 18,5 x 27 cm
Efniviður: gegnheill beykiviður og lagskiptur beykiviður ómeðhöndlaður
Þyngd: 1,2 kg
Video: hvernig á að nota Texolv haföld með bandvefstól
Video: byrjendur í bandvefnaði
Deila
