Lojan vefbekkur
Lojan vefbekkur
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Þægilegur og stillanlegur vefbekkur fyrir ýmsar gerðir vefstóla.
Hægt er að stilla sætishæðina frá 51 til 69 cm, hann er með stöðugu sæti og hagnýtu geymslurými fyrir verkfæri. Einnig er hægt að velja hvort sætið sé lárétt eða örlítið hallað, allt eftir því hvað hentar best fyrir vefstólinn þinn og vinnulag.
Undir sætinu er hillurými þar sem hægt er að geyma skyttur, skæri eða garn, svo allt sé við höndina á meðan unnið er við vefstólinn.
Vefbekkurinn hentar með nánast öllum gerðum vefstóla. Hann er seldur ósamsettur og ómeðhöndlaður, gerður úr gegnheilum beyki og beykikrossviði. Samsetningarleiðbeiningar og verkfæri fylgja með.
Geymsluhillan er framleidd í Hollandi á vinnustað sem leggur áherslu á félagslega endurhæfingu og atvinnuþátttöku.
Efniviður: ómeðhöndlaður gegnheill beykiviður
