Snæfell
Snæfell
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Stærðir: 1 (2) 3 (4) 5 (6) 7 (8) 9
Yfirvídd: 94 (98,5) 107 (116) 120 (124) 133 (141) 150 cm / mælt er með 5 - 20 cm í hreyfivídd eða eftir smekk.
Módelið í dökku peysunni hefur 96 cm í yfirvídd og klæðist st. 4 sem gefur henni 20 cm í hreyfivídd. Módelið í ljósu peysunni hefur 85 cm í yfirvídd og klæðist st. 1 sem gefur henni 9 cm í hreyfivídd. Athugið að hreyfivídd er persónubundin, sumir vilja enga hreyfivídd á meðan aðrir vilja mjög mikla og allt þar á milli. Ef þið eruð efins hvar þið standið varðandi hreyfivídd er mælt með því að þið mælið ykkar yfirvídd og mælið svo peysu sem þið eigið sem er í þeirri stærð sem þið viljið að þessi endi í. Mismunurinn þar á milli er hreyfivíddin sem þið óskið eftir ;)
Bolur: 32 (33) 34 (35) 36 (37) 37 (38) 39 cm
Upphandleggur: 38,5 (41) 44 (46) 48,5 (50) 51,5 (53) 54 cm
Ermar: 48 (49) 49 (50) 50 (50) 50 (50) 50 cm
Aðferð: Snæfell er hefðbundin íslensk lopapeysa. Fyrst eru bolur og ermar prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umferð byrjar í vinstri hlið á bol en á axlastykki byrjar umferð á samskeytum bols og ermar, vinstra megin á baki. Prjónuð er upphækkun efst á bol áður en axlastykki er prjónað.
Vantar þig garn í peysuna, hér eru nokkrar uppástungur fyrir þig:
Deila
Efniviður
Efniviður
Plötulopi, tvöfaldur - (100 gr/150 m tvöfaldur):
A 1032 dökkmórauður 5 (5) 6 (6) 7 (7) 7 (8) 8 plötur
B 0001 hvítur 1 (1) 1 (1) 1 (1) 1 (1) 2 plata/plötur
5 þráða Snælda - (100 gr/150 m):
A 1 hvítt 5 (6) 6 (7) 7 (7) 7 (8) 8 hespur
B 9 koksgrátt 1 (1) 1 (1) 1 (1) 1 (1) 2 hespa/hespur
Snefnug - 50 gr/110 m:
A 7315 Grå beige 8 (8) 8 (9) 9 (10) 10 (11) 11 dokkur
B 7783 Mahogni 1 (1) 1 (1) 1 (2) 2 (2) 2 dokkur Midnatssol - 25 gr/200 m:
A 9550 Lysebrun 4 (5) 5 (5) 5 (6) 6 (6) 7 dokkur
B 9606 Mahogni 1 (1) 1 (1) 1 (1) 1 (1) 1 dokkur
Prjónað úr báðum þráðum samtímis
Prjónar og áhöld
Prjónar og áhöld
- nr. 5 / 80 cm hringprjónn
- nr. 6 / 80, 60 og 40 cm hringprjóna, gott er að hafa 100 cm hringprjóna fyrir stærðir 5, 6 og 7.
- nr. 4,5 og 5.0 / 40 cm
- nr. 4,5 og 6 / sokkaprjónar eða 80 -100 cm hring- prjóna ef þú notast við “magic loop” aðferðina. ATH! Gott er að nota prjóna nr. 6,5 - 7 í munstur- bekk ef munsturprjón á það til að kiprast saman hjá þér.
- 6 prjónanælur eða aukabönd.
- 2 prjónamerki.
Prjónfesta
Prjónfesta
10 x 10 cm = 14 Log 20 umf í sléttu prjóni á prjóna nr 6 eftir þvott. Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf
