Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 4

Stuðlaberg

Stuðlaberg

Venjulegt verð 1.050 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.050 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stærðir: 1 (2) 3 (4) 5 (6) 7

Yfirvídd: 93 (98) 107 (113) 120 (124) 129 cm / mælt er með 10 - 18 cm í hreyfivídd

Aðferð: Stuðlaberg er hefðbundin íslensk lopapeysa. Fyrst eru bolur og ermar prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umferð byrjar í vinstri hlið á bol en á axla- stykki byrjar umferð á samskeytum bols og ermar, vinstra megin á baki. Prjónuð er upphækkun efst á bol áður en axlastykki er prjónað. Bolurinn er örlítið styttri og örlítið meiri yfirvídd en hefðbundnar lopapeysur til að mynda smá “boyfriend look” í peysunni.

Vantar þig garn í peysuna:

Lamauld

Snældan

Peruvian Highland Wool

Efniviður

Léttlopi
50 gr - 100 m
A: 9427 ryðbrúnn 8 (9) 9 (10) 11 (12) 12 dokkur
B: 1418 spónn 1 (1) 1 (1) 1 (1) 1 dokka
C: 1419 ax 1 (1) 1 (1) 1 (1) 1 dokka

Ef þú vilt einn munsturlit þá þarftu u.þ.b. 120 (130) 140 (150) 160 (165) 175 m

Metrafjöldi fyrir aðallit er u.þ.b. 740 (850) 880 (950) 1100 (1150) 1200 m

Aðrar garntegundir sem einnig er hægt að nota:
Lamaull frá CaMaRose
50 gr - 100 m
3 þráða Snælda
50 gr - 130 m

Prjónar og áhöld

Hringprjónar 4 og 4 1⁄2 mm - 40, 60 og 80 cm. Gott er að hafa 100 cm fyrir stærðir 5, 6 og 7.
Sokkaprjónar 3 1⁄2 og 4 1⁄2 mm eða 80 -100 cm ef notast er við “magic loop” aðferðina
Prjónanælur eða aukabönd = 6 stk
Prjónamerki = 2 stk

Prjónfesta

10 x 10 cm = 18 Log 24 umf í sléttu prjóni á prjóna nr 41 ⁄2 eftir þvott. Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf

Skoða allar upplýsingar