T&M - Chiaogoo skiptanlegir 2,75 - 10mm
T&M - Chiaogoo skiptanlegir 2,75 - 10mm
Stelpurnar á bak við Thread & Maple hafa hannað alveg einstakt skipulagskerfi fyrir verkfærin okkar. Við getum núna sett saman möppu sem er sérsniðin að okkar einstaka prjónasafni. Það á enginn eins prjóna, sumir eiga fullt af áföstum hringprjónum á meðan næsti á meira af sokkaprjónum eða bara skiptanlega prjóna eða allt í bland. Ekkert veski hefur komið á markaðinn sem getur virkað fyrir svona ólíkar þarfir og einnig verið svona tímalaust og fallegt á sama tíma. Það sést að þessar vörur eru hannaðar af prjónurum fyrir prjónara!
Þetta veski passar fyrir heila settið frá Chiaogoo sem inniheldur oddastærðir: 2,75mm, 3,25mm, 3,5mm, 3,75mm, 4,0mm, 4,5mm, 5,0mm, 5,5mm, 6,0mm, 6,5mm, 8mm, 9mm, 10mm. Veskið hentar bæði fyrir 10 cm eða 13 cm odda.
Veskið getur bæði verið blaðsíða í möppunum frá Thread & Maple eða stakt veski. Ef þú átt marga skiptanlega odda þá getur þú fengið þér eins margar síður í möppuna eins og þú telur þörf á.
Veskin eru handgerð af mikilli nákvæmni og natni úr ekta leðri. Leðrið er sérvalið af stelpunum í Thread & Maple með það í huga að það eldist fallega og gangi jafnvel í erfðir. Leðrið eldist einstaklega fallega og fær maður tilfinningu fyrir því að veskið eigi sér sögu og það fær einnig á sig mikinn karekter með tímanum.
Stærð:
Opið: 27cm x 18cm
Lokað: 13,5cm x 18cm
ATH! prjónarnir á myndinni fylgja ekki með.