Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 3

T&M - Chiaogoo snúruveski

T&M - Chiaogoo snúruveski

Venjulegt verð 12.990 kr
Venjulegt verð Söluverð 12.990 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stelpurnar á bak við Thread & Maple hafa hannað alveg einstakt skipulagskerfi fyrir verkfærin okkar. Við getum núna sett saman möppu sem er sérsniðin að okkar einstaka prjónasafni. Það á enginn eins prjóna, sumir eiga fullt af áföstum hringprjónum á meðan næsti á meira af sokkaprjónum eða bara skiptanlega prjóna eða allt í bland. Ekkert veski hefur komið á markaðinn sem getur virkað fyrir svona ólíkar þarfir og einnig verið svona tímalaust og fallegt á sama tíma. Það sést að þessar vörur eru hannaðar af prjónurum fyrir prjónara!

Þetta veski passar fyrir snúrur frá Chiaogoo (og fleiri merkjum). Veskið hjálpar til við að halda góðu skipulagi á snúrufjölda og stærðum svo auðvelta sé að finna þá snúru sem vantar í hvert skipti. 

Veskið getur bæði verið blaðsíða í möppunum frá Thread & Maple eða stakt veski. Ef þú átt marga skiptanlega odda þá getur þú fengið þér eins margar síður/veski í möppuna eins og þú telur þörf á. 

Veskin eru handgerð af mikilli nákvæmni og natni úr ekta leðri. Leðrið er sérvalið af stelpunum í Thread & Maple með það í huga að það eldist fallega og gangi jafnvel í erfðir. Leðrið eldist einstaklega fallega og fær maður tilfinningu fyrir því að veskið eigi sér sögu og það fær einnig á sig mikinn karekter með tímanum. 

Stærð:

Opið: 27cm x 18cm

Lokað: 13,5cm x 18cm

Skoða allar upplýsingar