T&M - hringprjónar
T&M - hringprjónar
Stelpurnar á bak við Thread & Maple hafa hannað alveg einstakt skipulagskerfi fyrir verkfærin okkar. Við getum núna sett saman möppu sem er sérsniðin að okkar einstaka prjónasafni. Það á enginn eins prjóna, sumir eiga fullt af áföstum hringprjónum á meðan næsti á meira af sokkaprjónum eða bara skiptanlega prjóna eða allt í bland. Ekkert veski hefur komið á markaðinn sem getur virkað fyrir svona ólíkar þarfir og einnig verið svona tímalaust og fallegt á sama tíma. Það sést að þessar vörur eru hannaðar af prjónurum fyrir prjónara!
þetta veski er hannað fyrir áfasta hringprjóna og hægt er að geyma allt að 12 hringprjóna í því. Það eru 6 hólf og hægt er að setja tvö pör í hvert hólf. Veskið getur bæði verið blaðsíða í möppunum frá Thread & Maple eða stakt veski. Ef þú átt marga hringprjóna þá getur þú fengið þér eins margar síður í möppuna eins og þú telur þörf á. ATH! Einnig eru hólf fyrir hringprjóna í öðrum vængnum á möppunum.
Veskin eru handgerð af mikilli nákvæmni og natni úr ekta leðri. Leðrið er sérvalið af stelpunum í Thread & Maple með það í huga að það eldist fallega og gangi jafnvel í erfðir. Leðrið eldist einstaklega fallega og fær maður tilfinningu fyrir því að veskið eigi sér sögu og það fær einnig á sig mikinn karekter með tímanum.
Stærð:
Opið: 27cm x 18cm
Lokap: 13.5cm x 18cm
ATH! prjónarnir á myndinni fylgja ekki með.