T&M - Körfu taska
T&M - Körfu taska
Ekki tókst að hlaða framboði á afhendingum
Stelpurnar á bak við Thread & Maple hafa hannað alveg einstakt skipulagskerfi fyrir verkfærin okkar. Við getum núna sett saman möppu sem er sérsniðin að okkar einstaka prjónasafni. Það á enginn eins prjóna, sumir eiga fullt af áföstum hringprjónum á meðan næsti á meira af sokkaprjónum eða bara skiptanlega prjóna eða allt í bland. Ekkert veski hefur komið á markaðinn sem getur virkað fyrir svona ólíkar þarfir og einnig verið svona tímalaust og fallegt á sama tíma. Það sést að þessar vörur eru hannaðar af prjónurum fyrir prjónara!
Taskan nýtur sín best í einfaldleikanum þar sem leðrið og klassískt formið segir allt sem segja þarf. Tvö stór hólf eru á utanverðri töskunni og 3 smærri hólf eru að innanverðu. Þetta er taskan sem allir þurfa að eiga!!
Töskurnar eru handgerðar af mikilli nákvæmni og natni úr ekta leðri. Leðrið er sérvalið af stelpunum í Thread & Maple með það í huga að það eldist fallega og gangi jafnvel í erfðir. Leðrið eldist einstaklega fallega og fær maður tilfinningu fyrir því að taskan eigi sér sögu og hún fær einnig á sig mikinn karekter með tímanum.
Stærð: 30x19x25cm
ATH! áhöld og garn sem birtast á mynd fylgja ekki






