Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 5

T&M - blandað veski

T&M - blandað veski

Venjulegt verð 12.990 kr
Venjulegt verð Söluverð 12.990 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stelpurnar á bak við Thread & Maple hafa hannað alveg einstakt skipulagskerfi fyrir verkfærin okkar. Við getum núna sett saman möppu sem er sérsniðin að okkar einstaka prjónasafni. Það á enginn eins prjóna, sumir eiga fullt af áföstum hringprjónum á meðan næsti á meira af sokkaprjónum eða bara skiptanlega prjóna eða allt í bland. Ekkert veski hefur komið á markaðinn sem getur virkað fyrir svona ólíkar þarfir og einnig verið svona tímalaust og fallegt á sama tíma. Það sést að þessar vörur eru hannaðar af prjónurum fyrir prjónara!

þetta veski er hannað fyrir blönduð áhöld og sérstaklega hugsað sem veski sem myndi henta að setja í öll þau verkfæri sem þarf fyrir eitt verkefni. Veskið getur geymt bæði áfasta hringprjóna, sokkaprjóna, skiptanlega hringprjóna og heklunálar. Einnig er rennt hólf fyrir smáhluti eins og t.d. prjónamerki. Veskið getur bæði verið blaðsíða í möppunum frá Thread & Maple eða stakt veski. 

Veskin eru handgerð af mikilli nákvæmni og natni úr ekta leðri. Leðrið er sérvalið af stelpunum í Thread & Maple með það í huga að það eldist fallega og gangi jafnvel í erfðir. Leðrið eldist einstaklega fallega og fær maður tilfinningu fyrir því að veskið eigi sér sögu og það fær einnig á sig mikinn karekter með tímanum. 

Stærð:

Opið: 27cm x 18cm 

Lokap: 13.5cm x 18cm

ATH! prjónarnir á myndunum fylgja ekki með.

Skoða allar upplýsingar