Farðu í vöruupplýsingar
1 Af 2

Tumi

Tumi

Venjulegt verð 1.050 kr
Venjulegt verð Söluverð 1.050 kr
Útsala Uppselt
Skattur innifalinn. Afhendingarskilmálar

Stærðir: 2-4 (4-6) 6-9 mánaða

Aðferð: Smekkbuxurnar Tumi eru að mestu prjónaðar í hring, smekkur og bönd eru prjónuð fram og til baka með 1x1 stroffi. Stroff neðan á buxum eru einnig prjónuð með 1x1 stroffi. Skálmar eru prjónaðar fyrst og þær svo sameinaðar á einn prjón og ísetan prjónuð áfram sem eitt stykki í hring. Í lokin eru smekkur og bönd prjónuð. Hægt er að lengja bæði stroff á skálmum og í böndum á smekk, en passið þá að hafa nægilegt garn til að lengja.

Efniviður

Alls: 350 (410) 490 m af garni í fingering grófleika. Hér fyrir neðan eru uppástungur af garntegundum sem hægt er að nota.

Yaku frá CaMaRose
50 gr dokkur = 200 m
2 (3) 3 dokkur

Sommeruld frá CaMaRose
50 gr dokkur = 230 m
2 (2) 3 dokkur

Tynd lamauld frá CaMaRose
50 gr dokkur = 220 m
2 (2) 3 dokkur

Prjónar og áhöld

Hringprjónar nr 2 1⁄2 og 3 - 40 cm
Sokkaprjónar nr 2 1⁄2 og 3
Prjónamerki = 4 stk
Aukaband = 2 stk
Tölur = 2 - 4 stk ca. 18 mm

Prjónfesta

10 x 10 cm = 28 L og 40 umf í sléttu prjón á prjóna nr 3 eftir þvott. Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf

Skoða allar upplýsingar