Veðurfræðingurinn
Veðurfræðingurinn
Stærðir: 1 (2) 3
Yfirvídd: 90 (99) 108 cm / mælt er með 5-15 cm í hreyfivídd
Aðferð: Veðurfræðingurinn er klassísk íslensk lopapeysa. Munstrið í berustykkinu var unnið út frá gömlu veðurtáknunum í veðurfréttunum þessvegna fékk þessi peysua nafnið Veðurfræðingurinn.
Bolur og ermar eru prjónuð í hring. Við handveg eru lykkjur af ermum og bol sameinaðar á einn prjón og axlastykki prjónað í hring. Umferð byrjar í vinstri hlið á bol en á axlastykki byrjar umferð á samskeytum bols og ermar, vinstra megin á baki.
Vantar þig garn í peysuna:
Deila
Efniviður
Efniviður
Léttlopi
50 gr - 100 m
A: 0052 8 (9) 10 dokkur
B: 1420 1 (1) 1 dokka
C: 0085 1 (1) 1 dokka
D: 0056 1 (1) 1 dokka
E: 0086 1 (1) 1 dokka
F: 0054 1 (1) 1 dokka
G: 0051 1 (1) 1 dokka
Einnig er hægt að nota þessar garntegundir
Lamaull frá CaMaRose
50 gr - 100 m
3 Þráða Snælda
50 gr - 130 m
Prjónar og áhöld
Prjónar og áhöld
Hringprjónn nr 3 1⁄2 - 80 cm
Hringprjónar nr 4 1⁄2 - 40 og 80 cm
Sokkaprjónar nr 3 1⁄2 og 4 1⁄2
Prjónanælur eða aukabönd = 4 stk
Prjónamerki = 1 stk
Prjónfesta
Prjónfesta
10 x 10 cm = 18 L og 24 umf í sléttu prjóni á prjóna 4 1⁄2 eftir þvott. Sannreynið prjónfestu og skiptið um prjónastærð ef þarf